Hér er einfaldur og jafnframt sérlega ljúffengur forréttur sem slær alltaf í gegn.
Fyrir 6 manns.

Hráefni:
Útvatnaður eða sérútvatnaður saltfiskur frá Ektafiski, 800 – 1.000 gr.
Sólþurrkaðir tómatar í olíu
Grænar ólífur m/papríku
Svartur pipar
Valkvætt: Kapers, blaðlaukur og steinselja

Dressing:
Majones
Sýrður rjómi
Appelsínuþykkni

Saltfiskurinn er settur í pott og hitaður þar til suðan kemur upp. Ef saltfiskurinn er
sérútvatnaður (minna saltinnihald) nægir að hita hann í gegn t.d. í örbylgjuofni.
Leyfið fisknum að kólna örlítið. Allt skorið svo og saxað og blandað saman í skál.
Notið olíuna af tómötunum og bætið við ólífuolíu ef þarf. Fínt að láta salatið
jafna sig í ísskáp í 1-2 klukkutíma áður en það er borið fram.
Blandið saman majonesinu og sýrða rjómanum í aðra skál, helming á móti helmingi,
og bætið appelsínuþykkninu út í eftir smekk. Fínt að hafa appelsínubragðið
frekar ákveðið.

Borið fram með baguette brauði.

Bon appétit!

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop