PuertoRico

Saltfiskklattar frá Puerto Rico eða Bacalaitos er ljúffengur smáréttur sem nýtur mikilla vinsælda í Puerto Rico og Dóminíska Lýðveldinu.
Bacalaitos hentar fullkomlega t.d. á köldu veisluborði og þá er gott að vera með kaldar sósur með þeim, t.d. piparrótarsósu, sítrónusósu eða sweet relishsósu, en sú sósa hefur reynst best hjá okkur og verið vinsælust þó einföld sé.
Klattarnir eru líka ljúffengir einir og sér í matinn, heitir, nýsteiktir og bornir fram með soðnum kartöflum, salati og að sjálfsögðu með sweet relish-sósu.

Uppskriftin er einföld og þægileg:

  • 300 g sérútvatnaður saltfiskur
  • 2 bollar hveiti
  • ¼ rauð paprika
  • ¼ græn paprika
  • ¼ laukur
  • 2 geirar hvítlaukur
  • 1 tsk steinselja
  • ¼ tsk. svartur nýmalaður pipar
  • ½ tsk. nýmalað salt
  • 1-2 bollar fisksoð
  • 3 bollar olía

Sjóðið saltfiskinn í 5 mín. Setjið paprikuna, laukinn, hvítlaukinn, steinseljuna, piparinn og saltið í matvinnsluvél og maukið saman.
Merjið saltfiskinn og hrærið honum saman við og jafnið með hveitinu og soðinu.
Búið til klatta og steikið þá upp úr olíu.

Köld sósa:
1 bolli léttmajones
1 msk sweet relish
Hrært vel saman og best að láta standa og jafna sig í smá stund

Verði ykkur að góðu!

0
    0
    Your Cart
    Your cart is emptyReturn to Shop