Heim / Ekta réttir / Hollustustefna

Hollusta og ferskleiki hráefnis er ávallt í fyrirrúmi hjá Ekta réttum. Fiskurinn er ávallt keyptur nýveiddur og veljum við helst ferskan stórfisk af markaði að morgni og gæðaeftirlit í eldhúsinu okkar er strangt.


"Fiskur er mjög hollur. Hann er góður próteingjafi og í honum eru ýmis önnur næringarefni, t.d. selen og joð. Erlendar rannsóknir benda til að þeir sem borða tvær til þrjár fiskmáltíðir í hverri viku fái mun síður hjartaáfall en þeir sem borða lítinn eða engan fisk."
- Lýðheilsustöð


Ekta réttir innihalda hvorki herta fitu, transfitusýrur, aukefni, MSG, litarefni né rotvarnarefni.
Einnig er Plokkfiskurinn okkar án mjólkur og eggja svo hann hentar vel þeim sem hafa óþol gagnvart þeim fæðutegundum.