Heim / Ekta réttir

image Ekta réttir eru tilbúnir, hollir og gómsætir fiskréttir.
Ekta réttir eru nýjung á íslenskum markaði, fyrstu réttirnir voru bornir fram í febrúar árið 2007 og hefur þeim verið tekið afskaplega vel alveg frá upphafi. Nú þegar eru um 30 vörutegundir á matseðlinum og sífellt bætast við nýjungar eftir því sem við þróum framleiðsluna áfram.

Ekta réttir henta ákaflega vel fyrir stóreldhús; mötuneyti skóla og fyrirtækja, en einnig fást þeir í smáum neytendapakkningum sem eru smám saman að koma í verslanir um land allt.

Þó við teljum okkur sérfræðinga í saltfiski þá bjóðum við einnig upp á rétti úr annars konar fiskmeti; t.d lúðu, bleikju, laxi, ýsu, þorski, steinbít oþh.

imageEkta Réttir ehf eru að meirihluta í eigu fjölskyldufyrirtækisins Ekta fisks ehf, ásamt góðum fjölskylduvini okkar og athafnamanni, Sveini Jónssyni frá Kálfskinni. Haustið 2006 keyptum við húsnæði við hliðina á Ekta fisks húsinu okkar og settum upp eldhús af fullkomnustu gerð.
Í upphafi árs 2007 réðum við til okkar listakokk að nafni Jón Vídalín sem býr yfir mikilli reynslu í matreiðslu og veitingarekstri og hefur alveg sérstakan áhuga á fiskréttum. Hann er yfirkokkur og framleiðslustjóri Ekta rétta ehf. Jón er einnig margreyndur í veisluþjónustu og mun hann taka að sér slíkar veislur frá eldhúsi Ekta rétta með áherslu á fjölbreytta fiskrétti.

Aðstoðarframleiðslustjóri í eldhúsinu er Elísabet Sigursveinsdóttir, einn reynslumesti starfsmaður Ekta fisks, og sér hún þannig um eldhúsið að það líkist helst skurðstofu, svo gott er allt eftirlit og umgengni með þrifum.

Strax í upphafi var gerður samstarfssamningur við Norðlenska um dreifingu á vörum Ekta rétta, sem eru að mestu kælivara, og hefur það samstarf gengið mjög vel. Við hugum sérstaklega að hollum barnvænum mat fyrir leikskóla og erum í góðu samstarfi við matráða leikskóla við þá hönnun.