Heim / Ekta fiskur / Uppskriftir / Saltfisksalat með ætiþistli, sólþurrkuðum tómötum og eggjum

Saltfisksalat með ætiþistli, sólþurrkuðum tómötum og eggjum

500 g saltfiskur – hnakkastykki frá Ektafiski
6 st. ætiþistill, skornir í 4-6 hluta
4 st. harðsoðin egg, skorin í báta
6 st. smáttskornir sólþurrkaðir tómatar
12 st. svartar ólífur, skornar í sneiðar
2 msk. hvítvínsedik
4 msk. ólífuolía
50 ml. sítrónusafi
2 msk. fínt saxaður laukur
½ haus af jöklasalati
salt og nýmalaður pipar


Skerið saltfiskinn í fínar ræmur og leggið í ólífuolíuna með edikinu, sítrónusafanum, lauknum, sneiddum ólífunum og sólþurrkuðum tómötunum.
Kryddið til ef með þarf með salti og nýmöluðum pipar.
Komið jöklasalatinu fyrir í skál og blandið saltfiskinum saman við, skreytið með eggjunum og ætiþistlinum.
Berið fram kalt.


handa 6